Velkomin;*

11.02.2008 15:17:29 / Erna

endalok

Hvernig er hægt að þykja vænt um e-ð sem er ekki lifandi og getur þannig ekki sýnt væntumþykju tilbaka, eða jafnvel hatur? Þetta er skrýtið. Mér þykir allavega mjög vænt um þessa síðu enda búin að eiga hana og reka, með mismiklum dugnaði, síðan ég byrjaði í fyrsta bekk. Þess vegna þykir mér það eiga við að breyta til, skipta um síðu, fyrst ég er nú að klára 4. bekk. Ég hef eiginlega bara fengið nóg af að geta ekki skoðað síðuna mína þegar mig langar til og bloggað þegar ég vil.

Við höfum gengið í gegnum margt saman; flutninga, að byrja í sambandi og sambandslit, gelgjutímabil, örvæntingu og gleði. Hún hefur verið alveg ómetanlegur stuðningur þegar ég hef e-ð að segja, þótt það sé bara eintóm bull og þvæla, og er alveg sama hverskonar rugl það er.

Æjj já mér þykir vænt um hana.

Ég ætla ekki að eyða neinu útaf henni, því það verður gaman að koma hingað eftir e-n tíma og lesa allt saman aftur.

Takk fyrir mig og við sjáumst á hinni hress sem endranær.

www.123.is/ernabj

-Erna


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 22:38:06 / Erna

titill?

Langt síðan síðasta blogg var, enda blog.central búið að vera bilað og leiðinlegt og ekki mikið sem ég hef getað bloggað um. Hefði reyndar getað bloggað bara svona stream of consciousness en ég fattaði það ekki.

Það er samt komið á hreint að ég fer í tvær utanlandsferðir í ár, jey! Fyrst fer ég eitthvert, það er ekki komið á hreint. Þetta er í ferðamálafræði í skólanum og við förum saman fjögur og fjögur í hópum og eigum að gera verkefni um þá borg sem við lendum í. Það eru 27 borgir sem koma til greina en aðeins uhhhh... færri sem verða svo fyrir valinu. Ég man nú ekki allar en þetta eru borgir í Frakklandi og Þýskalandi, mjög spennó. Svo fer ég með familíunni til Costa del sol í júlí/ágúst, það verður bara stuð!

Ég var svo að taka til í herberginu mínu og gólfið er aaaalveg hreint en rúmið er fullt! Þess vegna ætla ég að halda uppboð, svo ég þurfi ekki að taka til, milli kl. 20. og 22. annað kveld. Sem dæmi um hluti eru ilmvötn, bodyspray, webcam, föt og fleira nytsamlegt. Nei okey djók, ég ætla ekki að halda uppboð, sorry!

Takk fyrir mig og veriði sæl að sinni.

-Erna

p.s. úps ég gleymdi limrunni.


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 19:56:19 / Erna

úps

Dagurinn í dag var óhappa. Ég ætlaði í mesta sakleysi mínu að kíkja á hrossin mín með Sela og Lauk, klifraði yfir girðinguna og búmm - náði e-n veginn að festa fótinn í girðingunni og flaug á hausinn, eða meira svona hnéð og olnbogann. Við nánari athugun kom í ljós að ég fékk sár á hnéð og olnbogann, en þar sem ég er orðin svo stór stelpa þá fór ég ekki að gráta. Hnéð er samt með mótþróa og hefur bara bólgnað meir og meir eftir sem líður á daginn, frábært!

Að öðrum efnum, flauelsefnum. Djók, held ég hafi meirað segja sagt þennan brandara hér áður! úps.

Ég tók svo upp á því áðan að hlusta á gamla tónlist, eða tónlist sem ég hef ekki hlustað á leeeengi og ég held satt best að segja að Steinar sé orðinn örlítið þreyttur á því. úps. Æjj hann fær engu ráðið um það, en fær bara slatta af kúri í staðinn, þá eru allir sáttir og ég líka. =]

Ég ætlaði að koma með limru en netið er með stæla svo sorry ef þið voruð orðin spennt. Svona er lífið bara, full of surprises. Ég er svo djúp.

Hey, þið, kommentið!

- Erna


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 13:48:59 / Erna

kitl

Hún Sigrún beibí kitlaði mig svo hér kemur smá leikur.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Verða milli
2. Eignast hús í útlöndum
3. Fara í heimsreisu
4. Verða forseti Íslands
5. Borða bakaðar baunir með kúrekum í villta vestrinu
6. Eiga afmæli mörgum sinnum
7. Verða mamma

Sjö hlutir sem ég get:

1. Ropað hátt
2. Keyrt eins og alvöru kona
3. Farið í leik í símanum mínum
4. Borðað núðlur
5. Eldað pylsur
6. Verið pirrandi eldra systkini
7. Verið góða eldri systkinið

Sjö hlutir sem ég get ekki:

1. Flogið
2. Migið með opna hurð
3. Sofið með kveikt ljósið
4. Hlustað á metal
5. Sungið eins og engill
6. Keypt mér nýjan bíl
7. Hlegið lágt

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. Andlitið
2. Hárið
3. Rassinn
4. Brosið
5. Persónuleikinn
6. Hendurnar
7. Lyktin

Sjö þekktir sem heilla:
[í engri ákveðinni röð]

1. Johnny Depp
2. Jude Law
3. Chad Michael Murray
4. Adam Brody
5. James Lafferty
6. George Clooney
7. Brad Pitt

Sjö orð/setningar sem ég segi oft

1. Ég á engan pening
2. Bíllinn minn er að verða bensínlaus
3. Nei ég er ekkert svöng
4. Face
5. Sjitt
6. Fuck
7. Lúði

Sjö hlutir sem ég sé núna

1. Símann minn
2. Heimilssímann
3. Axel bróðir
4. Bassa
5. Kerti
6. Spil
7. Kveikjara

Sjö kítlaðar manneskjur

1. Agnes
2. Kata
3. Nína
4. - 7. þeir sem vilja!

Danke - betra blogg l8er.


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 18:28:20 / Erna

to be or not to be

Ég er ákveðin. Ég ætla í háskóla strax í haust, er hrædd um að fara bara ekkert í háskóla ef ég tek mér frí næsta vetur svo ég ætla bara að slá til. Er búin að vera að skoða hvað ég gæti farið í, en við eigum eftir að fara suður í háskólakynningu svo kannski sé ég ljósið þar, vonandi. Annars er ég með ákveðið fag í huga sem ég hef örlítinn áhuga á, en það er leyndó.

 

Ég er samt svo skíthrædd að vera að fara í nýjan skóla, aftur, og þekkja engann, aftur. Það verður samt kannski öðruvísi núna, en ég er ekki svo viss. Ég man hvað ég var að drulla á mig þegar ég labbaði inn í stofuna mína, fyrsta daginn í MA. Litla músarhjartað á 200, hnén skulfu og þoka fyrir augunum. Og ekki skánaði það þegar við þurftum að standa upp, segja til nafns og aðeins um okkur, þá fyrst hélt ég að það myndi líða yfir mig. Ég lifði það þó af og stamaði bara örlítið. Ég efast þó ekki um að ég eigi eftir að upplifa það sama ef ég fer í háskóla [ef-ið er því ég er ekki búin að sækja um og þessvegna ekki búin að fá staðfestingu á því hvort ég hafi komist inn í skólann eða ekki] því ég hef nú voða lítið breyst síðan haustið 2004, er ennþá sama feimna stelpan en bara örfáum árum eldri.

 

En ég er bara ennþá í menntó, og í prófatíð svo ég ætla að hætta að hugsa háskóla núna og læra fyrir síðasta prófið mitt sem er á morgun. Kannski fæ ég mér að borða fyrst.

 

-Erna


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 20:14:24 / Erna

Áfallahjálp

Vegna slæmra viðbragða og hættu á hjartaáfalli ákvað ég að setja inn myndir sem munu vonandi bæta upp fyrir myndirnar í síðustu færslu. Afsakið.

 

Bannorðið í síðustu færslu var; próf.

-Erna =]


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 17:47:35 / Erna

Ógisslega skemmtilegur annáll!

Það er kominn smá annáll frá árinu 2007 ef þið hafið áhuga. Ég lofa ekki að hann sé fyndinn, enda lifi ég mjög óspennandi lífi sem einkennist af; sofa, vakna, læra, borða and so on. But tjékk it! Hann er hér í aðalvalmyndinni.

Mér var svo boðið í mat í kveld, til Kötu og Villa. Verður eflaust e-ð gott á boðstólnum eins og vanalega :) Ég gæti kannski komið með eftirréttinn, ég á nú hérna Kellog's Special K heilsustangir. Hmmm.

Það er sérstakt bannorð í þessari færslu sem bannað er að segja eða skrifa, en ég segji ykkur það í næstu færslu. Ég vil nefnilega hafa þessa færslu lausa við yfirþyrmandi dapurleika þessa ljóta orðs, það er líka bannað að giska á það í kommentum, annars.. ! Takk.

Ég er búin að reyna að muna hvað myndin heitir sem við Kata, Arnór og Bryndís fórum saman á í bíó hér í den og ég man það loksins!! Hún heitir The Reaping! Nú er ég búin að blogga það svo ég mun EKKI gleyma því aftur, en ef ég geri það þá get ég bara kíkt hingað. Þetta er svo góð mynd að mig langar bara að horfa á hana aftur, núna! mmm

Ég fann líka svolítið á gömlu bloggi sem sannar hvað ég er sniðug svo ég ætla að skella því hér inn:

En svo fór ég að pæla.. því það er alltaf talað um að kinda bílinn og e-ð... í gamla daga þegar það voru kannski ekki miðstöðvar í bílum höfðu menn þá bara kindur afturí? Ég meina, ég hef oft heyrt að fólki hafi haft kindur í húsum eða undir þeim til að kinda húsið.. hehe af hverju ekki í bílum þá? Ef þið sjáið kind aftur í skotti hjá mér þá vitiði allavega að miðstöðin er biluð. =]

Ætli ég segji þetta ekki bara gott í bili.

Sæt systkin!

-Erna


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 00:06:39 / Erna

ég elska próf !

Þá er prófatíð að hefjast og venjulegri kennslu lokið. Ég er formlega búin í frönsku þar sem ekkert próf er úr henni og ég var að skila síðasta verkefninu áðan, vó! Núna er það bara læra læra læra eins og sveitt svín [læra þau?] og ná þessum fjandans prófum með stæl! Svo tekur bara síðasta önnin við, já ég er senior. Believe it or not. James Barnes - Cold Chisel

Það sem mér finnst best í prófatíðinni er að hlusta á tónlist meðan ég læri og það má ekki vera öll tónlist, nei það verður að vera Cold Chisel. Veit ekki afhverju en ég bara elska þessa hljómsveit, veit bara um góð lög með þeim! Uppáhalds eru samt Flame Trees og Khe Sanh, best í heimi =]. 

Það einkennir líka prófatíð að vera alltaf með skítugt hár. Ég fikta og fikta í hárinu á mér á meðan ég læri svo það er stanslaust fitugt og ógeðslegt. Geðslegt ekki satt? Náttbuxur eru líka voooða þægilegar =P.

Annars er saga fyrsta prófið, næsta þýska og enska það síðasta. Jább bara 3 próf! =D fögnum.

And then he did -->

Síminn minn er dáinn, ég ætla að setja hann í hleðslu snöggvast.

Verið ófeimin við að kommenta e-ð skemmtilegt pg uppbyggjandi fyrir mig í prófatíðinni á meðan ég er að læra.

Oh the flame trees will blind the weary driver
And there's nothing else could set fire to this town
There's no change, there's no pace
Everything within its place
Just makes it harder to believe that she won't be around

staðreynd; appelsínugulur og fjólublár voru uppáhaldslitirnir mínir þegar ég var lítil.

-Erna

P.s. ég horfði á the Secret í gær og djöfulsins kjaftæði! blogga måske betur um það seinna. góða nótt.


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 18:55:27 / Erna

gleðilegt nýtt ár kæru landar

2008 er gengið í garð og 2007 liðið í aldanna skaut.

Mig langar sfolítið til að gera myndaværslu um árið en ég hugsa að ég nenni þfí ekki. Hev líka miklu meira en nóg að gera.

Áramótin foru foðalega róleg hjá mér og mínum, en þau hóvust með tfeggja tíma kföldmat eða vondu sem far ljúvveng eins og fenjulega. Þfí næst far það brennan sem hevði ferið miklu skemmtilegri ev það hevði ekki komið rigning. Vlugeldasýning far mjög vlott, enda foru allir karlmennirnir á heimilinu að rivna úr stolti þegar þeir komu heim að henni lokinni [þeir foru sko að skjóta upp]. Skaupið stóð sfo ekki vyrir sínu og far atriðið með norðmönnunum og kindinni það eina almenninlega vyndna. Lítið far skotið upp hérna en alfeg nóg sfosem. Fið Dóra tókum sfo rúnt yvir á Vásk þar sem ekkert far að gerast hérna megin, og þar hittum fið hann Steinar minn sem far fel hress =]

Pabbi smellti nokkrum myndum av okkur systkinum, og mynduðumst fið fel eins og alltav.


uppstillt og þæg


Haukur fildi ekki fera með í ógeðisleiknum


krúttlegasta myndin, án eva.

Nína er að koma á evtir, jibbý.

-erna


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 01:42:04 / Erna

biblían er heilagur boðskapur skapara himins og jarðar, og ætti að vera á náttborðinu þínu!!!

það er kominn gamlársdagur. til hamingju með það allir saman.

ástkær maður minn liggur hér við hliðina á mér , nei ojjj kærastinn minn ! við erum ekki orðin gömul - ennþá.

ég elska að kúra!

það er kolkreisí veður úti, eða var það áðan. jakk

þetta er ógeðslega innihaldslaust og ómerkilegt blogg! veit ekki afhverju ég er að blogga núna en mig langaði það bara svo agalega.

kannski set ég nokkrar myndir inn fyrir ykkur, bara til að fylla smá upp í bloggið. ?


já einu sinni voru strákarnir pínu litlir og sætir


ég var líka einu sinni voða dugleg að keppa í íþróttum


og stundum vann ég verðlaunapening


Þóra amma var líka best í heimi og átti alltaf til gotterí handa okkur og nesquik


svo var maður líka alveg í tískunni í flotta flísjakkanum sem mamma saumaði með húfu í stíl!!!

ég á ekki fleiri online svoooona gamlar en þessar segja nú meira en þúsund orð!

ég ætla að fara að kúra hjá steinari mínum.

við sjáumst á nýju ári?

staðreynd; ég hef aldrei átt ekki neitt systkini.

-erna


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 18:08:29 / Erna

föstudagur

Image and video hosting by TinyPic

ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegra jóla ! takk fyrir árið sem er að líða og vonandi verður það næsta bara enn betra ! :)

2008, trúiði því? tja ekki ég allavega! finnst það hafa verið í fyrra sem við vorum að segja; vaaaá það er árið 2000 næst!
but no, not quite.

ég er lasin. það er alveg hreint magnað. hjónaballið í kveld svo það verður ekki mikið stuð á mér, ætla nú samt að fara, allavega á matinn.

myndir eru komnar á dufus-.central.is frá annan í jólum ballinu á eskifirði. það var gaman þótt það hefðu nú mátt vera aaaaðeins hressari lög í hléinu, hmm.

3 dagar í nýtt ár.

staðreynd; ég var alltaf hrædd við raketturnar þegar ég var lítil og vildi bara hafa stjörnuljós.

takk fyrir mig. 

 erna-


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 17:22:53 / Erna

nýr crash bandicoot leikur !

Heima hjá mér erum við með skemmtilega hefð á jólunum sem við reynum að halda í ár hvert, þótt sum jól detti hún uppfyrir en það þýðir þá bara að hún kemur sterkari inn næstu jól. Það er alltaf e-r á þessu heimili sem fyllist að ógeðslegri pest yfir jólin. Síðustu jól var enginn veikur svo þessi jól eru það tveir. Pabbi er búinn að vera lasinn og svo er ég að detta núna niður í e-ð ógeð. Frábært. Hefð sem ætlar ekki að láta gleyma sér.

Mig langar að leggjast upp í rúm og sofa þangað til svona 4 á aðfangadag. Það væri næs.

En ég er að fara að vinna í sjoppunni á eftir. ALLIR AÐ KOMA Á PIZZAHLAÐBORÐ!

staðreynd; ég var hrædd við Davíð Oddsson þegar ég var yngri. 

-Erna


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 11:15:51 / Erna

hugleikur dagsson er fyndinn

good morning san diego 

þá er það staðfest.

tilvitnun byrjar; Jón Már: þið fáið frí á morgun. tilvitnun lýkur. okey, hann sagði þetta ekki alveg svona því það var alveg aaaagalega langur inngangur, en endinn var nokkurn veginn svona og það öskruðu allir og klöppuðu. vúhú.

jább, það verður ekki kennt á morgun. en ég fer þó ekki heim fyrr en á morgun, ætla aðeins að dóla mér hér á ak og klára allt sem ég þarf að gera. það verður gaman.

anton er alltof jolly. á meðan allir mygla með starandi glampa í augunum hoppar anton um kátur sem slátur og jafn jolly og dolly (sko kindin sem var klónuð hér í den). hann verður tekinn í gegn á eftir, það er ekki hollt að vera í svona góðu skapi allan liðlangan daginn. =]

 

við oddný ætlum á nings í hádeginu að fá okkur ómótstæðligar núðlur með girnilegum hrísgrjónum og geggjuðum ávaxta topp. mmmm.

 

villi fór að tala um blackadder og mig langar svooo mikið að horfa á það núna. pabbi á spólu með e-m þáttum eeen við eigum ekki vídjótæki og guð má vita hvar spólan er niðurkomin. besta serían er þegar þeir eru í stríðinu hahahaha. ég mæli með að allir horfi á þessa þætti því þið eigið eftir að deyja úr hlátri. ég gerði það allavega =$

 

gleraugun mín eru komin. þau eru skrítin. ég á erfitt með að venjast þeim en ég reyni.

jebb hér er ég. fáránleg. ég held líka að ég sé með mishá eyru því öll gleraugu eru skökk á mér !

 

thank you for watching. stay tuned.

 

-erna


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 18:27:36 / Erna

hvað ætlar fólkið að gera í kveld ?

takk fyrir kommentin, gaman að sjá að það séu enn e-r sem skoða síðuna :]

það helsta á fréttum er að ég er búin að kaupa jólagjafir ! finally ! á þó eftir handa familíunni, við strákarnir þurfum að ræða aðeins saman! msn?

3 dagar í jólafrí , 7 dagar í jólin. nicht gut.

besta lag í heimi er -> hér <- heitir 1 2 3 og ég er að fílaða í botn! stundum held ég að storkurinn hafi flogið í vitlaust hús og ég hafi átt að vera negri .. :$ nei djók. ég elska samt rapp, íslenskt rapp! veit að það eru ekki margir sammála mér en só wott, þau geta bara hoppað uppí ----- . ;D

hmmm... eru allir komnir í jólaskap ? ekki ég allavega, fór á glerártorg með katz áðan og ég hélt ég myndi æla! fullt af fólki allsstaðar og allir að flýta sér svo mikið, með poka troðna af drasli. eins og fólk verði andsetið og gjörsamlega stjórnlaust. er það hinn sanni jólaandi? maður spyr sig .. við kata fengum svo að heyra á föstudaginn að við værum systur því við værum með eins klippingu! hahaha

en ég er farin í bili,

love

-erna

p.s. nýju gleraugun er enn ekki komin! meika ekki þessar ljótu linsur mikið lengur enda alveg á síðasta sjéns með dagsetningu ... ihhh morgun?


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 19:35:48 / Erna

níundi desember

couplewalking.jpg

Ég átti notalegustu helgi sem ég hef átt lengi um helgina þrátt fyrir vinnu, sem var annars bara fín. Við Lára skreyttum og tókum til í íbúðinni hátt og lágt [hágt og látt? djók] á föstudaginn og núna er svo jólalegt og kósý hjá okkur að mér líður bara vel að hanga hérna og gera ekki neitt. Það er samt ekki sniðugt fyrir hugann því hann er kominn í jólafrí, en ekki skólinn - ekki gott. Steinar kom svo norður í gær og það var svo gott að fá hann. Við gerðum samt ekki neitt, það var samt e-ð svo þægilegt, nema rúnta og skoða jólaskraut, koma svo heim og horfa á mynd og sofna yfir henni ;* Mig langar ekki að helgin sé búin, að skólinn sé á morgun + munnlegt próf í frönsku, og allra síst að Steinar sé farinn austur aftur! :( arg! en bráðum kemur jólafrí með betri tíð og blóm í haga, eða e-ð.

A worried young man from Stamboul
Founds lots of red spots on his tool.
Said the doctor, a cynic,
"Get out of my clinic;
Just wipe off the lipstick, you fool!"

Þetta er annars orðin svo dauð síða, ég blogga og blogga en voooða fáir kommenta svo ég nenni þessu varla lengur. Ég ætla að hætta þessu, eða fara í langt jólafrí, nema fleiri en 10 kommenti, so it's up to you guys.

staðreynd; það tók mig alltaf heillangan tíma að sofna á sunnudagskvöldum þegar ég var yngri.

-Erna

p.s. ég er samt ekki að biðja um sympathy komment ef þið haldið það, er bara öm að blogga þegar enginn kommentar.


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20